

Flataskóli - stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Flataskóla Um er að ræða 70% starf á starfstíma skóla. Möguleiki er á 100% stöðu ef viðkomandi vill einnig starfa í Frístundaheimili skólans eftir að starfstíma skóla lýkur.
Í Flataskóla starfa um 300 nemendur í 1.-7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins.
Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.
Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og gæsla í íþróttaklefa
- Fylgjast með samskiptum nemenda og grípa inní þar sem þörf er á
- Vinna með kennurum í að skapa jákvætt andrúmsloft í íþróttum
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Icelandic










