

Frístundaheimilið Krakkakot (Flataskóla)- leiðbeinandi
Flataskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimlið Krakkakot. Opnunartími frístundaheimilisins er frá kl. 14:00 –16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi.
Í Krakkakoti eru um 80 börn í 1.- 4. bekk sem eru þar við leik og fjölbreytt störf að loknum skóladegi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Flataskóla.
Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.
Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum í samræmi við gildi Flataskóla
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur
- Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Sinni frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Icelandic










