Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur

Umsjónarmaður frístundar, starfsmaður frístundar og skólaliði

Valsárskóli óskar eftir umsjónaraðila frístundar, starfsmanni í frístund og skólaliða. Frístund er opin frá 13-16:15 og starf skólaliða er fyrri hluta dags. Störfin geta þannig verið hlutastörf eða heil staða.


Ráðning er frá 20. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarmaður frístundar:
-Vinnur í frístund og ber faglega ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og daglegri stjórnun frístundastarfs.
-Verkstýrir og skipuleggur verkefni nemenda í frístund, veitir faglegan stuðning og skiptir verkum milli starfsmanna.
-Er í nánu samstarfi við skólastjóra auk foreldra og forráðamanna.
-Ber ábyrgð á að öryggisreglur séu virtar og stuðlar að vellíðan barna.
-Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni.

 
Skólaliði:
-Almenn gæsla inni og úti ásamt eftirliti með nemendum í búningsklefum.
-Starfar samkvæmt stefnu og starfsáætlun skólans.
-Tilfallandi stuðningur og aðstoð við nemendur á skólatíma og í tómstundastarfi.
-Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni.

Starf skólaliða felur meðal annars í sér reglubundna viðveru og gæslu inni í búnings- og sturtuaðstöðu drengja. Vegna eðlis starfsins og sjónarmiða um friðhelgi, öryggi og velferð nemenda er leitað eftir karlkyns starfsmanni í þetta tiltekna verkefni. 

Menntunar- og hæfniskröfur

-Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum 
-Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
-Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-Reynsla sem nýtist í starfi
-Stundvísi og samviskusemi
-Góð íslenskukunnátta
-Reynsla af starfi í grunnskóla er kostur.
-Aðlögunar- og samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
-Skipulagsfærni, stundvísi og reglusemi.
-Lausnamiðuð hugsun og færni til að sinna umbótum í skólastarfi.
-Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
-Jákvæðni og sveigjanleiki
-Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni.

Advertisement published5. August 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Valsárskóli 152911, 601 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags