Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli Fellabæ

Laust starf: Skólaliði og starf í frístund

Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir skólaliða og starfskrafti í frístund næsta skólaár. Starfshlutfall skólaliða er um 60% en möguleiki á hærra starfshlutfalli með starfi í frístund skólans á móti. Frístund er lengd viðvera fyrir nemendur í 1. - 4. bekk og er opin frá kl. 14-16 alla virka daga og lengur þegar ekki er hefðbundið skólastarf. Einnig er hægt að sækja bara um starf í frístund.

Um er að ræða tímabunda ráðningu út skólaárið. Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla

Helstu verkefni og ábyrgð

Skólaliði:

  • Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi
  • Almenn þrif á skólahúsnæði
  • Almenn gæsla í frímínútum og hádegi
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans

Starf í frístund:

  • Fylgja eftir skipulagi frístundastarfs. 
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Tryggja að börn komist í skipulagðar tómstundir á meðan dvalartíma stendur s.s. í tónlistarnám og/eða íþróttir.  
  • Gæta fyllsta öryggis barna og forðast þær aðstæður sem geta reynst hættulegar. 
  • Samskipti við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk grunnskóla er varða starfsemi frístundar. 
  • Önnur verkefni í samráði við skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi. 
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Lausnamiðun og geta brugðist hratt og vel við óvæntum atburðum sem upp koma. 
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð. 
Advertisement published5. August 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lagarfell 15, 700 Egilsstaðir
Fellaskóli
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags