
Stuðningsfulltrúi í 70-100% stöðu
Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Breiðholtsskóla í 70-100% starf.
Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, traust og tillitssemi og kjörorðin -árangur fyrir alla.
Starfsfólk vinnur saman í teymum, tekur virkan þátt í þróun skólastarfsins og starfsandi er góður. Mikil áhersla er lögð á læsi í víðum skilningi, félagsfærni og sjálfseflingu nemenda. Breiðholtsskóli státar af fjölmenningarlegu samfélagi bæði nemenda og starfsmanna en rúmlega 60% nemenda hafa annað móðurmál en íslensku.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.
Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi, frímínútum og vettvangsferðum.
Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu.
Að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs.
Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.· Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði.
- Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
Icelandic
English










