

Sérkennslustjóri í Sumarhúsum
Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða sérkennslustjóra til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og ráðagóðum einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.
Í leikskólanum er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Sköpun og leikurinn eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að koma að þróun leikskólans frá upphafi.
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustunnar í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra
- Vinnur að einstaklingsnámskrá barna sem á þurfa að halda
- Er faglegur umsjónarmaður stoðþjónustunnar í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
- Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta stoðþjónustu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
- Stýrir stoðþjónustuteymi leikskólans
- Er tengiliður leikskólans við ýmsa fagaðila utan leikskólans
- Er tengiliður leikskólans í þjónustu í þágu farsældar barna skv. lögum nr. 86/2021 og tekur þátt í þróun og innleiðingu laganna
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, þroskaþjálfi eða önnur sambærileg menntun
- Æskilegt er að umsækjandi hafi framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
- Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á lögum um farsæld barna
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla í starfi með leikskólabörnum
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar.












