ECIT
ECIT
ECIT

Sérfræðingur í launaþjónustu hjá ECIT

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum launasérfræðingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun launaþjónustu hjá ECIT.

Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði launavinnslu og ráðgjafar, þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina, eftirfylgni með launatengdum málum og þátttöku í þróun og umbótum á verkferlum. Launasérfræðingur starfar sem hluti af öflugu teymi sérfræðinga og vinnur náið með samstarfsfólki að því að tryggja faglega þjónustu, skilvirka verkferla og framúrskarandi upplifun viðskiptavina.

Við bjóðum

  • Áhugavert og fjölbreytt starf í öflugu teymi sérfræðinga.
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun þjónustu, verkferla og nýrra lausna.
  • Framsækið og metnaðarfullt starfsumhverfi með áherslu á nýsköpun og tækni.
  • Öflugt samstarfsfólk, góða vinnustaðamenningu og sveigjanleika.
  • Tækifæri til starfsþróunar innan öflugs og vaxandi fyrirtækis.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útreikningar á launum og launatengdum gjöldum fyrir viðskiptavini ECIT á Íslandi
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu, gæði og skil á launavinnslu samkvæmt verkferlum og tímamörkum.
  • Samskipti við lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Stuðla að áframhaldandi þróun launaþjónustunnar með umbótum á verkferlum, kerfum og þjónustu.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af launavinnslu og góð þekking á launamálum.
  • Sterk samskiptahæfni.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á nýrri tækni, sjálfvirknivæðingu og tækifærum sem felast í stafrænni þróun og umbótum.
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun upplýsingakerfa.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Advertisement published12. November 2026
Application deadline26. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags