
Landsnet
Landsnet er þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar sem sér um flutning raforku á Íslandi um háspennukerfi landsins. Fyrirtækið tryggir öruggan, stöðugan og skilvirkan flutning rafmagns um landið. Hjá Landsneti starfar kraftmikill hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Boðið er upp á faglegt umhverfi með stórum hópi sérfræðinga og fyrirmyndaraðstöðu. Áhersla er lögð á þjálfun og þróun starfsfólks og jafnvægi einkalífs og vinnu skiptir fyrirtækið miklu máli. Gildi Landsnets eru: Ábyrgð – Samvinna – Virðing.
Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Mótaðu framtíð raforkukerfisins með gögnum og greiningum
Við hjá Landsneti leitum að reynslumiklum sérfræðingi í viðskiptaþróun sem vill taka þátt í að móta framtíð raforkumarkaðarins á Íslandi. Starfið felur í sér verkefni sem snúa að þróun gjaldskrár og þróun viðskiptaumhverfis raforkumarkaðarins.
Þú verður hluti af teymi viðskiptaþróunar þar sem unnið er að nýsköpun í þjónustu og viðskiptum í takt við þróun raforkumarkaðarins hérlendis og erlendis.
Helstu verkefni
- Greining og þróun verkefna sem snúa að gjaldskrármálum, verðlagningu og þróun raforkumarkaðarins.
- Verkefnastjórn breytinga á viðskiptaumhverfi Landsnets og innleiðing nýrra lausna.
- Samskipti við eftirlitsaðila, viðskiptavini og aðra hagaðila raforkumarkaðarins.
- Þátttaka í þróun raforkumarkaðarins og verkefnum tengdum markaðsvæðingu raforkumála.
- Aðkoma að viðskiptaáætlunum, hagrænum greiningum og mati á fjárfestingaverkefnum.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur háskólamenntun á sviði hagfræði, viðskiptafræði eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
- Hefur reynslu af stefnumótandi verkefnum, greiningum eða þróun viðskiptaumhverfis.
- Hefur þekkingu á verðlagningu, gjaldskrám, markaðsmálum eða sambærilegum viðfangsefnum.
- Hefur reynslu af verkefnastjórnun og innleiðingu breytinga.
- Hefur sterka greiningarhæfni og góða yfirsýn.
- Getur átt árangursrík samskipti við ólíka hagaðila og byggt upp traust samstarf.
Við bjóðum þér
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun raforkumarkaðarins og framtíð innviða samfélagsins.
- Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga innan Landsnets og utan þess.
- Krefjandi og fjölbreytt verkefni þar sem stefnumótun, greiningar og breytingar fara saman.
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem styður við þróun og nýsköpun.
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Advertisement published9. June 2026
Application deadline21. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
Financial planningProactiveHuman relationsIndependenceTeam workProject managementBusiness relations
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri í gagnaveri
Rafal ehf.

Verkefnasafnsstjóri (e. portfolio manager) hjá Stafrænni heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Nýsköpunarstjóri - Stafræn heilsa
Heilbrigðisráðuneytið

Sumarævintýri með Eimskip á Grænlandi
Eimskip

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu
Landsvirkjun

Sérfræðingur í fjármálum
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Landspítali

Bókari
Eignaumsjón hf

Business Central ráðgjafi með þekkingu á verkbókhaldi
Advania

Sérfræðingur í vörukaupaskráningu
Samkaup

Publishing Producer
Fenris Creations

Samningastýra/stjóri hjá Veitum
Veitur