Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu

Viltu rýna í markaði og viðskipti?

Við hjá Landsvirkjum leitum að öflugum liðsfélaga í teymi viðskiptagreiningar. Teymið gegnir lykilhlutverki í að greina alþjóðamarkaði og viðskiptaumhverfi orkufyrirtækis þjóðarinnar og miðlar þeirri þekkingu til stjórnenda og samstarfsfólks, með það að markmiði að styðja við upplýsta ákvarðanatöku og stefnumótun. 

Helstu verkefni:

  • Greina þróun raforkumarkaða og þeirra markaða sem snerta viðskiptavini Landsvirkjunar 
  • Kortleggja viðskiptaumhverfið og samkeppnishæfni Íslands
  • Miðla upplýsingum um stöðu á alþjóðlegum mörkuðum
  • Veita ráðgjöf og deila þekkingu innan fyrirtækisins með greiningum, skýrslum og kynningum 
  • Koma að samskiptum við hagaðila og miðla niðurstöðum á aðgengilegan hátt, m.a. með opnum fundum og kynningum 

Við leitum að einstaklingi sem:

  • hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða á tengdum sviðum 
  • hefur reynslu af greiningarvinnu og framsetningu gagna  
  • býr yfir drifkrafti, frumkvæði og skipulagi og nýtur þess að hrinda verkum í framkvæmd  
  • hefur hæfni til að setja flókin gögn í samhengi, greina tækifæri og miðla niðurstöðum á skýran hátt 
  • býr að sjálfstæði í störfum og jákvæðni í samskiptum 

Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.

Advertisement published10. June 2026
Application deadline21. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags