
Samkaup
Samkaup er framsækið verslunarfyrirtæki sem er leiðandi í viðskiptaháttum, vörugæðum og þjónustu. Samkaup hf reka yfir 60 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.
Samkaup leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður, með öfluga framlínu þar sem gildi fyrirtækisins, Kaupmennska, Áræðni, Sveigjanleiki og Samvinna eru leiðarljós í öllu starfi.
Samkaup er rekstrarfélag á neytendavörumarkaði með virkt hlutverk í samfélaginu. Hlutverk Samkaupa er að tryggja neytendum vörugæði, góða þjónustu og fjölbreytt vöruval á eins hagstæðu verði og völ er á og með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Samkaup skal vera þekkt fyrir að fara alla leið í þágu vörugæða og þjónustu ásamt því að vera í fararbroddi í nýsköpun sem skapar tækifæri fyrir viðskiptavini, samfélag og starfsfólk.

Sérfræðingur í vörukaupaskráningu
Nýtt og spennandi tækifæri á fjármálasviði Samkaupa.
Samkaup er eitt stærsta verslunarfyrirtæki landsins og rekur fjölda verslana undir þekktum vörumerkjum um allt land. Við erum nú að byggja upp nýtt teymi vörukaupaskráningar innanhúss og leitum að reynslumiklum og drífandi sérfræðingi til að taka þátt í þeirri uppbyggingu frá fyrsta degi.
Teymið tilheyrir fjármálasviði og ber ábyrgð á bókun allra vörukaupareikninga félagsins. Þetta er kjörið tækifærið fyrir þann sem hefur sterka reynslu af vörukaupum og bókhaldi, hefur metnað til að móta verkferla og vill hafa raunveruleg áhrif í lifandi og hröðu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bókun vörukaupareikninga og eftirlit með réttmæti þeirra
- Eftirlit með kostnaðarverðum og frávikum
- Samskipti við birgja
- Yfirsýn yfir birgðastöðu
- Afstemmingar lánardrottna
- Þátttaka í umbótum og mótun verkferla við innleiðingu verkefnisins innanhúss
Menntunar- og hæfniskröfur
- Marktæk reynsla af vörukaupaskráningu og bókhaldi eða sambærilegum störfum skilyrði
- Háskólagráða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vinnu í Business Central er kostur
- Sjálfstæði, frumkvæði og góð skipulagshæfni
- Fagmennska, nákvæmni og öguð vinnubrögð
- Rík þjónustuund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör í verslunum
- Velferðarþjónusta
- Heilsustyrkur
Advertisement published10. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hagasmára 1
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sumarævintýri með Eimskip á Grænlandi
Eimskip

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu
Landsvirkjun

Sérfræðingur í fjármálum
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Bókari
Eignaumsjón hf

Fulltrúi á skrifstofu Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Business Central ráðgjafi með þekkingu á verkbókhaldi
Advania

Sjúkraliði á dag- og göngudeild blóð-og krabbameinslækninga
Landspítali

Starf þjónustufulltrúa á Hreyfli
Hreyfill

Sjúkraliði á dag- og göngudeild blóð-og krabbameinslækninga
Landspítali

Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum
Eimskip

Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Landsnet

Samningastýra/stjóri hjá Veitum
Veitur