Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Nýsköpunarstjóri - Stafræn heilsa

Nýsköpunarstjóri hjá Stafrænni heilsu

Stafræn heilsa er ný miðlæg eining sem leiðir þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi og styður við heilbrigðisstofnanir. Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Unnið er að uppbyggingu nýsköpunarumhverfis á landsvísu í samstarfi við nýsköpunaraðila, og leitað er að nýsköpunarstjóra til að móta og leiða það starf. Starfið heyrir beint undir forstöðumann Stafrænnar heilsu.

Nýsköpunarstjóri ber ábyrgð á nýsköpunarstarfi sem styður við breytingar með nýrri tækni, gagnadrifnum lausnum og aukinni sjálfvirkni. Starfið felur í sér að virkja hugmyndir, styðja við þróunarverkefni og greiða leið nýrra lausna inn í heilbrigðisþjónustu, í nánu samstarfi við sérfræðinga í heilbrigðisráðuneytinu, heilbrigðisstofnanir, þróunaraðila og nýsköpunarsamfélagið.

Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu nýrrar einingar. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og kalla á stefnumótandi hugsun, frumkvæði og hæfni til að miðla lausnum í framkvæmd í flóknu umhverfi. Nýsköpunarstjóri ber ábyrgð á nýsköpunarstarfi einingarinnar og starfar í nánu samstarfi við forstöðumann og aðra stjórnendur að mótun og framgangi verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og móta stefnu um nýsköpun í stafrænum heilbrigðislausnum.

  • Byggja upp og þróa nýsköpunarumhverfi, m.a. prófunarumhverfi (¿sandkassa"), innleiðingarferla og árangursmat fyrir nýjar lausnir.

  • Styðja við og fylgja eftir nýsköpunar- og þróunarverkefnum í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila.

  • Meta og forgangsraða nýjum hugmyndum og lausnum í samvinnu við klíníska ábyrgðaraðila með það að markmiði að þær nýtist í starfsemi.

  • Rækta tengsl við innlenda og erlenda samstarfsaðila á sviði nýsköpunar.

  • Taka þátt í að skýra regluverk og kröfur sem gerðar eru til nýsköpunaraðila í heilbrigðisþjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar.

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af nýsköpunarstarfi, þróunarverkefnum eða stafrænum umbreytingum.

  • Þekking á upplýsingatækni, gagna- og hugbúnaðarþróun æskileg.

  • Þekking og reynsla úr heilbrigðisgeiranum æskileg.

  • Reynsla af samstarfi við fjölbreytta hagaðila, t.d. opinbera aðila og einkageira.

  • Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð.

  • Drifkraftur, stefnumótandi hugsun og frumkvæði í starfi.

  • Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi.

  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og á riti.

Advertisement published10. June 2026
Application deadline29. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags