Maven ehf.
Maven ehf.
Maven ehf.

Sérfræðingur í viðskiptagreind

Maven ehf. er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni með áherslu á mikilvægi gagna í rekstri fyrirtækja. Við vinnum í því að framtíðarvæða gagna- og tækniumhverfi okkar viðskiptavina.

Í ljósi aukinna verkefna leitum við að skapandi og lausnamiðuðu starfsfólki sem býr yfir ríkri þjónustulund. Við leitum að sérfræðingi í viðskiptagreind með reynslu og tæknilega þekkingu til að þróa með okkur nýjar lausnir í spennandi og fjölbreyttu tækniumhverfi.

Gagna- og viðskiptagreindar sérfræðingur hjá Maven mun vinna í hópi annarra sérfræðinga við hönnun, þróun og viðhald á gagnaumhverfum hjá okkar viðskiptavinum.

Okkar markmið er að skapa þekkingu .. úr gögnum .. með tækni .. með þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og þróun gagnaumhverfa innan tækniumhverfa viðskiptavina
  • Tæknileg þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
  • Nýsmíði og viðhald á gagnavöruhúsum viðskiptavina
  • Þróun á lausnum í Power Platform umhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, verkfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starf
  • Reynsla af hönnun, þróun eða innleiðingu á hugbúnaði
  • Reynsla og góð kunnátta í gagnagrunnsforritun (t.d. SQL, TSQL, PL/SQL)
  • Kunnátta á Azure, Power BI og/eða Python er kostur
  • Þekking á Agile og Scrum aðferðafræðum er kostur
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Árlegur tækjastyrkur
  • Árlegur íþróttastyrkur
  • Millimál og góður hádegismatur
  • Virk skemmtinefnd sem stendur fyrir reglulegum viðburðum
  • Fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlegum vinnutíma
  • Fjarvinna eins og þörf er á
  • Sturtuaðstaða
  • Hjólageymsla
Advertisement published14. October 2024
Application deadline27. October 2024
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Strandgata 31, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Database designPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SCRUMPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags