Datera ehf.
Datera ehf.
Datera ehf.

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu

Datera óskar eftir metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi mun fá tækifæri til að vinna með fjölbreyttum og áhugaverðum viðskiptavinum og sinna krefjandi verkefnum í skapandi og lifandi umhverfi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af stafrænni markaðssetningu og er tilbúinn að tileinka sér þekkingu á árangursríkum stafrænum auglýsingaherferðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með herferðum á helstu stafrænu miðlum (Meta, Google, TikTok, Reddit o.fl.)
  • Sérhæfð vinna við efnis- og upplýsingabestun (SEO og GEO) 

  • Markviss samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini

  • Greining gagna og skýrslugerð til að meta árangur herferða

  • Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu við stafrænar auglýsingar

  • Þekking og reynsla af META og Google auglýsingakerfunum

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði og skipulagshæfni

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Um Datera

Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, leitarvélaherferðum og sérhæfðri birtingaráðgjöf. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.

Að vinna hjá Datera
  • Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur

  • Greiddur hádegismatur þrjá daga vikunnar

  • Ávextir, snarl og frískandi drykkir alla daga

  • Virkt fræðslustarf

  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi

  • Öflugt félagslíf

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2026.

Advertisement published7. January 2026
Application deadline18. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags