Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sérfræðingur í rannsóknum og gerð tækniblaða

VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á ÖFLUGA MIÐLUN UPPLÝSINGA, ÁRANGURSRÍKT SAMSTARF VIÐ HAGAÐILA OG NÝSKÖPUN Á BYGGINGARMARKAÐI?

HMS vinnur að kerfisbreytingu í mannvirkjagerð með tillögum að breyttu byggingareftirliti í nýrri byggingarreglugerð. Endurskoðun byggingarreglugerðar er liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar.

Við leitum því að metnaðarfullum sérfræðingi í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Teymið vinnur m.a. að því að efla og samhæfa rannsóknir og prófanir í húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi í gegnum samstarfsvettvanginn Burð auk þess að sinna öflugri leiðbeiningagerð. Það veitir hagaðilum stuðning til að ná árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Einnig tekur teymið þátt í endurskoðun byggingarreglugerðar og vinnur að því að draga úr kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka við gerð og þróun tækniblaða svo sem Rb blaða og annarra hagnýtra leiðbeininga, m.a. í samstarfi við fagaðila utan HMS
  • Þátttaka í verkefnum samstarfsvettvangsins Burðar, m.a. Aski mannvirkjarannsóknasjóði og samvinnu við fagfélög
  • Þátttaka í að byggja upp þekkingu á prófunum byggingarvara á Íslandi
  • Styðja við aukna endurnotkun byggingarvara og aðra hringrás í mannvirkjagerð
  • Gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
  • Svara tæknilegum fyrirspurnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á byggingasviði, s.s. verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, eða arkitektúr er skilyrði
  • Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
  • Reynsla af rannsóknum og / eða prófunum er kostur
  • Þekking á faggildingum er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published28. July 2026
Application deadline12. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags