

Sérfræðingur í teymi þjóðhagsreikninga
Hagstofa Íslands leitar að sérfræðingi í teymi þjóðhagsreikninga í deild efnahagsmála
Teymi þjóðhagsreikninga vinnur að greiningu, úrvinnslu og miðlun þjóðhagsreikninga og undirþátta þeirra í samræmi við alþjóðlegt regluverk og staðla.
Í deild efnahagsmála er unnið að greiningu og miðlun tölfræði um stöðu og þróun efnahagsmála í samræmi við alþjóðlega aðferðafræði, þarfir innlendra notenda og meginreglur í evrópskri hagskýrslugerð. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og fela í sér samskipti og samstarf við hagsmunaaðila og innlendar og erlendar stofnanir.
Í starfinu felst m.a. þátttaka í aðferðafræðilegum og tæknilegum umbótum þar sem framsækin vinnubrögð skipta höfuðmáli. Unnið er í gagnagrunnsmiðuðu umhverfi þar sem skilvirkni og marktækni er höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Greining og úrvinnsla úr upplýsingum um íslenskt hagkerfi
-
Fylgjast með þróun efnahagsmála og birting tölfræðilegra upplýsinga
-
Samstarf við innlenda og erlenda aðila
-
Þátttaka í umbótum og þróun á aðferðum og vinnuferlum
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun á sviði hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af greiningu og miðlun talaefnis
-
Reynsla af notkun forrita við tölfræðiúrvinnslu (t.d. R/Python)
-
Reynsla af notkun SQL
-
Áhugi og þekking á efnahagsmálum og íslensku atvinnulífi
-
Þekking á þjóðhagsreikningum er kostur
-
Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
-
Skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Framsækni í vinnubrögðum og lausnamiðuð hugsun
-
Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í samvinnu
Hvað býður Hagstofan upp á?
-
Krefjandi og spennandi verkefni
-
Vinnu í samfélagslega mikilvægu hlutverki
-
Skemmtilegt samstarfsfólk
-
Gott mötuneyti
-
Íþróttastyrk
-
Samgöngustyrk
-
Sveigjanlegan vinnutíma
-
Möguleika til fjarvinnu að hluta
-
Hjólageymslu og bílastæði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Leiðarljós starfseminnar eru þjónusta, áreiðanleiki og framsækni. Hagstofan er staðsett í lifandi umhverfi í Borgartúninu, starfsumhverfið er jákvætt, fjölskylduvænt og sveigjanlegt og við höfum öflugt starfsmannafélag. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is
Icelandic
English










