COWI
COWI
COWI

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti

Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

COWI á Íslandi leitar að sérfræðingum í eftirlitsstörf við og á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Helstu verkefni eru eftirlit með framkvæmdum við jarðvinnu, veitulagnir, vega- og gatnagerð, byggingar og aðra mannvirkjagerð. Við erum að fjölga í byggingarstjórnardeildinni okkar hjá COWI, en í deildinni starfa fjöldi sérfræðinga sem vinna að fjölbreyttum verkefnum fyrir viðskiptavini okkar við eftirlitsstörf, byggingastjórn og verkefnastjórn.

  • Daglegt eftirlit með framkvæmdum í samræmi við áætlanir, kröfur, staðla, lög og reglugerðir
  • Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila.
  • Úttektir og skýrslugerðir vegna eftirlits.
  • Skjalaskráning og vistun gagna.
  • Þátttaka á verkfundum.
Menntunar- og hæfniskröfur

COWI er þekkingarfyrirtæki og byggjum við reksturinn á þekkingu og hæfni fólksins okkar. Til að ná árangri í þessari stöðu leitum við eftir aðila sem kann að greina tækifærin og grípa þau, hefur gaman af því að vinna í skilvirku teymi þvert á deildir og landamæri og er opinn fyrir nýjum áskorunum.

Að auki erum við að leitast eftir:

  • Menntun sem nýtist í starfi: tækni- eða iðnfræði, iðnmenntun, verkfræði eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum og eftirlitsstörfum er kostur.
  • Reynsla af framkvæmdamælingum er kostur.
  • Þekking á íslenskum byggingarreglugerðum og stöðlum er kostur.
  • Kostur að hafa byggingarstjóraréttindi.
  • Almenn tölvuþekking
  • Góð samskiptafærni
  • Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
  • Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli
  • Bílpróf
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð
  • Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu  
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi
  • Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy
  • Árlegt heilsufarsmat
Advertisement published16. July 2026
Application deadline15. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Eyravegur 29, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Construction engineerPathCreated with Sketch.Industrial technicianPathCreated with Sketch.Master craftsmanPathCreated with Sketch.Journeyman licensePathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags