
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ veitir alhliða verkfræðiráðgjöf með áherslu á trausta og faglega þjónustu og hagkvæmar lausnir. Á skrifstofum VSÓ í Reykjavík og í Noregi starfar yfir 90 manna samhentur hópur verkfræðinga og annarra tæknimenntaðra starfsmanna.

Sérfræðingur við hönnun veitukerfa
Vilt þú stuðla uppbyggingu veituinnviða sem tryggja hreint vatn, skilvirk fráveitukerfi og sjálfbæra innviði samfélagsins? Við leitum að sérfræðingi við hönnun veitukerfa á sviði byggðatækni.
Um starfið
Sem sérfræðingur við hönnun veitukerfa munt þú m.a. vinna við:
- Hönnun veitukerfa: Verkefnastjórn, hönnun vatns-, hita- og fráveitu ásamt almennri ráðgjöf og eftirfylgni á byggingartíma.
- Áætlanagerð: Gerð kostnaðar- og verkáætlana vegna veituframkvæmda og undirbúnings þeirra.
- Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga, og annarra gagna fyrir útboð innviðaframkvæmda.
- Skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á fagsviði veitukerfa.
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:
- Menntun: Menntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Sérfræðimenntun tengd veitukerfum er kostur.
- Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
- Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.
Hvað bjóðum við?
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:
- Tækifæri til að leiða í mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
- Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
- Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Líflegt félagsstarf.
Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Veitukerfi.
Advertisement published13. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
Location
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
TechnologistEngineer
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti
COWI

Project manager and Market Director for Infrastructure
COWI

Forstöðumaður fasteignaumsjónar
Brynja leigufélag ses.

Nýr Landspítali - Framkvæmdasvið - Verk-, tækni- og byggingarfræðingar
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur í vöruþróun (e. R&D engineer) - Ísafjörður
Kerecis

Tæknimaður með sölu- og þjónustuáhuga.
Ferro Zink hf

Sérfræðingur í burðarvirkjum
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í lögnum og loftræsikerfum
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti á sviði byggðatækni
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Business Control Manager
Icelandair

R&D Innovation Excellence Specialist | Össur
Embla Medical | Össur