

Sérfræðingur í markaðseftirliti og eftirliti með raforkumarkaði
Raforkueftirlitið óskar eftir að ráða öflugan og gagnadrifinn sérfræðing til starfa við markaðseftirlit og greiningar á raforkumarkaði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem sameinar greiningar og eftirlitsverkefni með áherslu á gagnasöfnun, greiningu, úrvinnslu og mat á viðskiptaháttum á heildsöluorkumarkaði raforku. Starfið felur í sér sérhæfð tæknileg verkefni við undirbúning, framkvæmd og frumúrvinnslu gagna frá fyrirtækjum. Sérfræðingurinn mun jafnframt taka þátt í að miðla upplýsingum og þróa gagnagrunn og greiningarumhverfi sem styður við ákvarðanatöku og stefnumótun á sviði orkumála.
Raforkueftirlitið er sjálfstæð eining innan Umhverfis- og orkustofnunar sem fer með framkvæmd og eftirlit samkvæmt raforkulögum og hefur það hlutverk að tryggja virka samkeppni, stuðla að hagkvæmri uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa og efla nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa
Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í að móta markaðseftirlit með viðskiptum á heildsöluorkumarkaði.
- Söfnun, úrvinnsla og greining gagna sem varða framboð, eftirspurn og verðmyndun raforku
- Eftirlit með viðskiptaháttum fyrirtækja á raforkumarkaði og markaðsgreiningar á raforkumarkaði
- Mótun og viðhald gagnagrunna og greiningartækja
- Framsetning greiningarskýrslna og miðlun upplýsinga til stjórnvalda og hagsmunaaðila
- Þátttaka í umbótaverkefnum og stefnumótunarvinnu innan Raforkueftirlitsins
- Þátttaka í greiningum á raforkukerfinu og vinnu við orkuspá
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
- Þátttaka og faglegur stuðningur við ýmis verkefni sem unnið er að hverju sinni
- Háskólapróf í hagfræði, rekstrarverkfræði, fjármálaverkfræði, tölvunarfræði stærðfræði eða skyldum greinum
- Mjög góð greiningarhæfni og mjög gott vald á úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga
- Marktæk reynsla af markaðsgreiningum, hagtölugreiningum eða rekstrar/fjármálagreiningum er kostur
- Góð tölvufærni og kunnátta í greiningartólum (t.d. Excel, Python, R, SQL).
- Hæfni til að miðla flóknum gögnum á aðgengilegan hátt í ræðu og riti
- Þekking á raforkumarkaði eða reynsla frá orku- og veitustarfsemi telst kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Jákvætt viðhorf, góð samstarfsfærni og hæfni til að vinna í þverfaglegu teymi















