Icelandair
Icelandair
Icelandair

SEO & Integration Specialist

Við leitum að sérfræðingi í leitarvélabestun og innleiðingu (e. SEO & Integration Specialist) til að slást í hóp okkar í markaðsdeild. Við óskum eftir einstakling sem hefur reynslu af leitarvélabestun, er fljótur að tileinka sér stafræna tækni og er með hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.

Mikilvægt er að umsækjandi hafi löngun til að læra, metnað fyrir leitarvélabestun í efnissköpun og tæknimálum, og áhuga á ferða- og flugmálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Auka sýnileika Icelandair í leitarniðurstöðum á leitarvélum (e. organic search) með áherslu á lykilmarkaði og markhópa.
  • Vinna náið með stjórnendum, teymum innanhúss og samstarfsaðilum erlendis til að þróa, samræma og sjá um að stefnumótun Icelandair í leitarvélabestun sé í samræmi við markmið í markaðssetningu, efnisgerð og vörum fyrirtækisins.
  • Byggja upp og viðhalda sambandi við innlenda og erlenda samstarfsaðila á stafrænum miðlum.
  • Skilgreina lykilárangursmælikvarða, fylgjast með og greina frammistöðu í leitarvélabestun með það að markmiði að hámarka birtingar í leitarniðurstöðum, vefumferð og viðskiptahlutfall.
  • Taka þátt í verkefnum með mismunandi vöruteymum sem vinna að vefþróun og stafrænni markaðssetningu og hafa tengingu við leitarvélabestun, bæði hvað varðar efnissköpun og tæknimál.
  • Tryggja að vefur Icelandair sé þannig uppsettur að hann nái sem bestum árangri í leitarniðurstöðum (e. optimized) á aðalmarkaðssvæðum og í samræmi við nýjustu þróun og kröfur fyrir algóritma í leitarvélum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfinu, t.d. í markaðsfræði, textagerð, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Að lágmarki tveggja ára reynsla í leitarvélabestaðri efnissköpun.
  • Færni í helstu tólum fyrir leitarvélabestun á borð við Google Analytics og SEMrush.
  • Reynsla og þekking á tæknilegri hlið leitarvélabestunar, t.d. uppbygging vefja, HTML, kunnátta á vefumsjónarkerfum er kostur.
  • Framúrskarandi enskukunnátta er skilyrði, færni í að skrifa góðan texta. Kunnátta á öðrum tungumálum er kostur.
  • Hæfni til að vinna í þverfaglegum teymum ásamt því að geta unnið að mörgum verkefnum, koma hlutum af stað, greiða fyrir verkefnum og skipuleggja, o.fl.
  • Góð aðlögunarfærni, hæfni til að forgangsraða og vinna á skilvirkan hátt.
  • Jákvæðni, opinn hugur fyrir endurgjöf og nýjum verkefnum og framtaki hjá fyrirtækinu.
  • Góð samskiptahæfni, bæði í töluðu og rituðu máli. Hæfni til að koma upplýsingum á framfæri og kynna þær fyrir hagaðilum á skýran hátt.
Advertisement published15. November 2024
Application deadline25. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdWordsPathCreated with Sketch.Email marketingPathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Search Engine Optimization (SEO)PathCreated with Sketch.Market researchPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Content writing
Professions
Job Tags