
Coripharma ehf.
Coripharma er nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem þróar og framleiðir samheitalyf fyrir önnur lyfjafyrirtæki á erlendum mörkuðum.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það vaxið hratt og undirbýr nú útflutning á tugum lyfja. Í dag starfa um 220 manns hjá Coripharma. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Sérfræðingur í kerfisumsjón við upplýsingatæknideild
Coripharma leitar að lausnamiðuðum, metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf sérfræðings í kerfisumsjón við upplýsingatæknideild.
Upplýsingatæknideild er stoðdeild innan verkfræðisviðs og þjónustar alla starfsemi fyrirtækisins. Hún ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi upplýsingakerfa og gagnagrunna, auk þess að veita almenna notendaþjónustu fyrir starfsfólk.
Starfsemi Coripharma þarf að uppfylla fjölbreyttar og strangar kröfur lyfjaiðnaðarins, þar á meðal GMP-reglur. Upplýsingatæknideildin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að öll upplýsingakerfi og gagnagrunnar uppfylli þessar kröfur á hverjum tíma.
Í starfinu felst umsjón með nokkrum af helstu kerfum fyrirtæksins, gagnavinnsla og virk þátttaka í öryggis- og gæðamálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur og viðhald upplýsingakerfa.
- Samskipti við hýsingaraðila um rekstur á búnaði tengdum upplýsingakerfum s.s. netbúnaði, netþjónum o.fl.
- Samþætting kerfa
- Gagnavinnsla
- Samskipti og þjónusta við notendur innan fyrirtækis
- Samskipti við birgja og þjónustuaðila
- Öryggis- og gæðamál fyrir gögn og upplýsingakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í upplýsingatækni, s.s. í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, kerfisfræði eða af öðru sambærilegu sviði.
- Reynsla af rekstri upplýsingakerfa. Reynsla af rekstri framleiðslukerfa/ERP kerfa er mikill kostur.
- Grunnþekking á netrekstri
- Þekking á gagnavinnslu og notkun á SQL / Power BI er kostur
- Reynsla af samþættingu kerfa er kostur
- Reynsla af öryggisvörnum og gagnavernd er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Áhugi á að tileinka sér nýja tækni
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Advertisement published7. November 2025
Application deadline16. November 2025
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
AzureMicrosoft CRMMicrosoft Power PlatformAutomationSQL
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Tæknimaður
Faxaflóahafnir sf.

Síminn leitar að gagnaforritara (e. Data Engineer)
Síminn

Síminn leitar að gagnagreinanda (e. Data Analyst)
Síminn

Hugbúnaðarsérfræðingur
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Senior Data Analyst
Bókun / Tripadvisor

VFX Artist
CCP Games

Senior Data Engineer
CCP Games

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu
Advania

Project Manager
Wisefish ehf.

Kerfisstjóri
Tindar-Tæknilausnir

Gagnaforritari – Data Engineer
Orkuveitan

Database Administrator (DBA)
Rapyd Europe hf.