Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Félagsráðgjafi í velferðarþjónustu Árborgar

Við leitum að áhugasömum og jákvæðum einstaklingi til að taka þátt í mikilvægum velferðarþjónustuverkefnum hjá fullorðinsteymi Árborgar. Í sveitarfélaginu er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og framsækið starf í velferðar-, frístunda- og skólaþjónustu.

Félagsráðgjafi í fullorðinsteymi vinnur í samstarfi við aðra sérfræðinga í teyminu og sinnir öllum málaflokkum teymisins s.s. einstaklingum 18 ára og eldri og fjölskyldna, fatlaðs fólks, flóttamanna, innflytjenda og annarra viðkvæmra málaflokka.

Um er að ræða 100% stöðu og nauðsynlegt að einstaklingur geti hafið störf sem fyrst.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og skipulag þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir
  • Málstjórn og ráðgjöf í málum fatlaðs fólks
  • Er ráðgjafi og fer með ábyrgð á einstaklings- og fjölskyldumálum sem sækja um fjárhagsaðstoð eða félagslega ráðgjöf.
  • Þátttaka í umbótastarfi út frá stefnu sveitarfélagsins, félagsþjónustulögum og lögum um málefni fólks með langvarandi stuðningsþarfir.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem félagsráðgjafi skilyrði.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Þekking og reynsla af starfi í þeim málaflokkum sem taldir voru upp hér að ofan er skilyrði.
  • Reynsla og þekking á meginverkefnum velferðarþjónustu er skilyrði.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi er nauðsynleg.  
  • Hæfni í þverfaglegri teymisvinnu er mikilvæg.
  • Þekking á kerfunum Onecrm, Navision, Office365 og fjárhagsaðstoðarkerfi sveitarfélaganna (Veitur) kostur.   
Advertisement published20. December 2024
Application deadline13. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags