

Sérfræðingur á sviði samgangna
Langar þig að stuðla að betri samgöngum? Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til að taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem tengjast umferðartæknilegri hönnun og ráðgjöf.
Um starfið
Sem sérfræðingur á sviði samgangna munt þú vinna við:
- Samgöngugreiningar: Greiningar á umferð og þörfum gangandi, hjólandi og akandi í tengslum við ný og breytt skipulagssvæði.
- Umferðarspár: Gerð umferðarspáa fyrir alla ferðamáta m.a. með notkun samgöngulíkans höfuðborgarsvæðisins.
- Hermun umferðar og afkastagetugreiningar: Hermun allra samgöngumáta t.d. í tengslum við undirbúning fyrir Borgarlínu.
- Umferðartæknilega hönnun: Hönnun ljósastýringa og forhönnun gatna og gatnamóta m.a. vegna forgangs fyrir almenningssamgöngur og neyðarakstur.
- Umferðaröryggi: Greiningar, áætlanagerð og hönnun m.t.t. umferðaröryggis, umferðar á framkvæmdatíma o.fl.
Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill starfa í þverfaglegu og spennandi umhverfi.
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:
- Menntun: Háskólamenntun á sviði verkfræði eða tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
- Hugbúnaðarkunnátta: Reynsla af VISSUM og/eða VISSIM er kostur, en ekki skilyrði.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
- Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.
Hvað bjóðum við
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:
- Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
- Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum verkefnum á sviði umhverfismála.
- Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Líflegt félagsstarf.
Hvernig á að sækja um
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Samgöngur.
Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/













