Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og þroskavanda?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að sálfræðingi til starfa í greiningarteymi Geðheilsumiðstöðvar barna. Teymið sinn nánari greiningu barna og unglinga að 18 ára aldri ef sterkar vísbendingar eru um athyglisbrest, ofvirkni (ADHD) eða skyldar raskanir, svo sem tilfinningavanda, hegðunarerfiðleika, samskiptavanda eða hamlandi einkenni einhverfurófs.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 100% tímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni sálfræðing fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu, ráðgjöf og meðferð barna með geð- eða þroskavanda. Sálfræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Sálfræðingur leggur fyrir ýmis sérhæfð greiningarviðtöl og sálfræðileg próf. Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Starfsleyfi frá embætti landlæknis sem sálfræðingur
• A.m.k 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg 
• Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við greiningu á geð- og þroskavanda hjá börnum
• Reynsla af notkun helstu greiningartækja fyrir börn og ungmenni
• Sérhæfing á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum æskileg
• Þekking og reynsla af einhverfu greiningum æskileg 
• Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og öguð vinnubrögð
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
• Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Advertisement published13. October 2025
Application deadline3. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags