

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Mjódd
Heilsugæslan Mjódd auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Mjódd starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Mjódd leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið er heilsueflandi móttaka, ungbarnavernd, skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka
- Hjúkrunarfræðingur metur heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði.
- Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
- Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
- Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. sárameðferð, lyfjagjöfum, saumatökum og smáaðgerðum.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Faglegur metnaður
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
- Frumkvæði og geta starfað sjálfstætt
- Góð íslenskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur


















