
Ráðgjafi í viðskiptalausnum með áherslu á þjónustu við sveitarfélög
Ráðgjafi í viðskiptalausnum með áherslu á þjónustu við sveitarfélög
Wise óskar eftir metnaðarfullum sérfræðingi með brennandi áhuga á stafrænni umbreytingu til að ganga til liðs við öflugt teymi ráðgjafa á skrifstofur fyrirtækisins í Reykjavík og Akureyri. Í starfinu felst ráðgjöf við innleiðingu og þróun á lausnum byggðum á Microsoft Business Central fyrir sveitarfélög og þátttaka í krefjandi stafrænum umbreytingarverkefnum. Í boði er spennandi starf hjá framsýnu og öflugu fyrirtæki með tækifærum til starfsþróunar.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um notkun á Sveitastjóra Wise
- Stafræn umbreytingarverkefni og innleiðingar á sérhönnuðum lausnum fyrir sveitarfélögin
- Þátttaka í þjálfun og kennslu á Sveitastjóra Wise
- Þarfagreiningar og þátttaka í hönnun lausna fyrir sveitarfélög
Reynsla og hæfni:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á bókhaldi og fjármálum sveitarfélaga
- Reynsla af Navision / Microsoft Business Central
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og aðlögunarhæfni
- Hæfni og geta til að vinna sjálfstætt og í hóp
Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.
Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2025 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.













