Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Öryggisfulltrúi hjá Landsneti

Við hjá Landsneti leitum að metnaðarfullum og áhugasömum öryggisfulltrúa til að bætast í öryggisteymi fyrirtækisins. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem tengjast innleiðingu öryggismenningar og vinnubragða með áherslu á að lágmarka áhættu í starfsemi okkar við rekstur flutningskerfisins. Öryggisfulltrúinn mun vinna náið með öryggisstjóra og styðja vinnuflokka á línum og tengivirkjum við að fylgja framúrskarandi öryggisstöðlum og verkferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit, úttektir og þjálfun rafiðnaðarfólks sem sinnir viðhaldi og viðgerðum á mannvirkjum Landsnets.
  • Aðstoð við innleiðingu og þróun öryggismenningar fyrirtækisins.
  • Verkefni sem tengjast öryggisvottunum og áætlanagerð fyrir vinnuflokka.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
  • Menntun í rafvirkjun, rafveituvirkjun eða á sambærilegu sviði.
  • Reynslu af öryggismálum tengdum háspennu og rafmagni.
  • Sterka öryggisvitund, öguð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi .
  • Frumkvæði, drifkraft og lausnamiðaða hugsun.
  • Þekking á ISO 45001 er kostur. 
Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
  • Stuðning við að vaxa í starfi og bæta við þig þekkingu.
  • Tækifæri til að vinna við verkefni sem skipta máli fyrir samfélagið!
Advertisement published20. January 2025
Application deadline3. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags