Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf

Gæða- og öryggisstjóri Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf

Byggingarfélagið leitar að gæða- og öryggisstjóra sem starfar þvert á deildir og verkstaði, veitir ráðgjöf í gæða- og öryggismálum og tryggir viðeigandi samráð og upplýsingagjöf. Við leitum að traustum aðila með reynslu af gæða- og öryggismálum sem hefur áhuga á að sinna gæða- og öryggismálum í byggingariðnaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með gæða-, öryggis- og umhverfismálum í samræmi við lög, reglugerðir og staðla.
  • Skapar, viðheldur og er ábyrgur fyrir öryggismenningu.
  • Þjálfun og fræðsla fyrir starfsfólk, ásamt þróun fræðsluefnis er varða gæða- og öryggismál.
  • Umsjón með gæðaeftirliti, innri og ytri úttektum, umbótum og eftirfylgni.
  • Eftirfylgni með gerð áhættumats á verkstöðum.
  • Sinna fyrirbyggjandi aðgerðum, atvikaskráningu, úrbótum og eftirfylgni vegna slysa, atvika og frávika.
  • Gerð, viðhald og endurnýjun á öryggis- og gæðahandbókum, verkferlum, áætlunum og leiðbeiningum.
  • Vinna að því að verklag og ferlar séu skilvirkir. 
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda og samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum við gæða- og öryggismál.
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi. Sveinspróf í iðngrein er kostur.
  • Góð tækniþekking, Office 365, Sharepoint, Ajour.
  • Sannfæringarkraftur, áræðni og geta til að hrinda hugmyndum í framkvæmd.
  • Færni í mannlegum samskiptum og uppbyggilegt viðmót.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Faglegur metnaður og skipulagshæfni.
  • Hæfileikar til að miðla þekkingu
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta er kostur. 
Advertisement published7. January 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Borgartún 31, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags