Míla hf
Míla hf
Míla hf

Netsérfræðingur

Við leitum að klárum netsérfræðingi til starfa við að byggja upp og viðhalda IP-neti Mílu. IP-net Mílu er stórt, öflugt og margslungið fjarskiptakerfi sem þjónar mörgum íslenskum heimilum, stofnunum og fyrirtækjum. Netsérfræðingurinn verður hluti af net-teymi Mílu, sem tilheyrir nýju tæknisviði. Tæknisvið Mílu sér um hönnun, uppbyggingu, rekstur og kerfisvöktun fjarskiptakerfa Mílu. Hjá tæknisviðinu starfa alls konar sérfræðingar sem brenna fyrir nýjustu tækni og tækjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú ert að fara starfa í net-teymi Mílu sem heldur utan um IP-netin okkar. 

  • Uppsetning og rekstur á IP/MPLS-neti Mílu 

  • Fjölbreytt verkefni tengd nethönnun, sjálfvirknivæðingu, eftirlits- og stoðkerfum IP/MPLS-nets Mílu 

  • Samskipti og ráðgjöf til viðskiptavina, samstarfsaðila og sviða innan Mílu 

  • Þátttaka í þróun, hönnun og stefnumótun fjarskiptakerfa Mílu 

  • Verkefnastjórnun 

Menntunar- og hæfniskröfur

Hér getur ýmis konar menntun eða reynsla komið að góðum notum við þetta starf. Reynsla af rekstri netkerfa eða tölvukerfa er mikill kostur. 

  • Þekking og reynsla á rekstri netkerfa og/eða tölvukerfa er kostur 

  • Tæknimenntun í verkfræði, tæknifræði eða tölvunarfræði er kostur 

  • Þekking og reynsla af forritun er kostur 

  • CCNP eða önnur sérfræðimenntun eru kostur 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og góð þjónustulund 

  • Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og leiða framfarir 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta við skrif og lestur 

Fríðindi í starfi

Helstu kostir þess að starfa hjá Mílu: 

🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði  

🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta  

🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum 

🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum 

💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun  

🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billiard-borði 

Advertisement published4. September 2024
Application deadline18. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
EnglishEnglishVery good
Location
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags