Festi
Festi
Festi

Hugbúnaðarþróun

Viltu taka þátt í að þróa nútímalegar tæknilausnir sem hafa áhrif á fjölda viðskiptavina.

Við leitum að öflugum bakendaforritara í hugbúnaðarþróunarteymi í upplýsingatæknideild Festi til að vinna að app- og vefþróun hjá Festi og dótturfélögum. Festi er móðurfélag N1, Krónunnar, Lyfju, ELKO, Bakkans og Yrkis.

Helstu verkefni

  • Þróun á smáforritum
  • Þróun á vefverslunum
  • Þróun á stafrænum lausnum til aukinnar sjálfvirkni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Tveggja ára reynsla í app- og/eða vefþróun
  • Reynsla af þróun í Python
  • Reynsla af þróun í .net
  • Þekking á AWS er kostur
  • Kostur að geta unnið í bæði fram- og bakenda
  • Geta til að vinna sjálfstætt sem og í góðu teymi

Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir Forstöðumaður upplýsingatækni (linda@festi.is )

Umsóknarfrestur er til 28. sept 2024

Advertisement published18. September 2024
Application deadline28. September 2024
Location
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags