Hagvangur
Hagvangur
Hagvangur

Móttöku- og skrifstofustarf

Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa á skrifstofu og í móttöku hjá traustu fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík.

Starfið er fjölbreytt og hentar vel einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum, leggur metnað í að veita góða þjónustu og á auðvelt með að halda utan um ólík verkefni. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri skipulagshæfni og leggja áherslu á faglega og hlýlega framkomu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta við gesti
  • Símsvörun og afgreiðsla almennra fyrirspurna
  • Umsjón með móttöku og sameiginlegum rýmum og tryggja að þau séu snyrtileg
  • Utanumhald, skipulag og eftirfylgni með tilteknum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af móttöku-, þjónustu- eða skrifstofustörfum er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
  • Jákvæð, fagleg og nærgætin framkoma
  • Traust, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni og gott auga fyrir smáatriðum
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published6. October 2026
Application deadline13. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags