

Markaðssérfræðingur
Samfélagsmiðlar, efnissköpun & viðburðir
Við hjá Lauf Cycles leitum að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi til að ganga til liðs við markaðsteymið okkar. Við leitum að manneskju sem hefur brennandi áhuga á samfélagsmiðlum og efnissköpun en er jafnframt tilbúin að taka virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburða Lauf og The Rift, bæði á Íslandi og erlendis.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er náið með markaðsteymi Lauf í að auka sýnileika og styrkja Lauf sem alþjóðlegt vörumerki.
Meira um starfið
Stór hluti starfsins snýst um að halda utan um samfélagsmiðla Lauf Cycles og The Rift. Þar á meðal að skipuleggja, framleiða og birta efni og halda miðlunum lifandi í samstarfi við markaðsteymi. Starfið felur einnig í sér skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum Lauf og The Rift. Það getur verið allt frá smærri viðburðum eða vörukynningum, yfir í stærri sýningar og alþjóðlega hjólaviðburði.
Þannig krefst starfið m.a. kunnáttu á upptökubúnað og klippiforrit, skilning á þeim trendum sem eru í gangi og að vera með skapandi hugsun í fyrirrúmi.
Þú munt meðal annars:
- Taka upp, klippa og framleiða myndbönd fyrir Meta, TikTok, YouTube og aðra miðla.
- Skipuleggja og birta efni á öllum samfélagsmiðlum Lauf og The Rift.
- Taka ljósmyndir og myndefni á viðburðum.
- Sinna samskiptum við samfélag Lauf og The Rift á samfélagsmiðlum.
- Vinna með íþróttafólki, áhrifavöldum og samstarfsaðilum Lauf í gegnum samfélagsmiðla.
- Taka þátt í skipulagi og framkvæmd viðburða Lauf hérlendis sem og í Bandaríkjunum og Evrópu.
- Vera hluti af kjarnateyminu á bak við The Rift, sem er ein af stærstu malarhjólakeppnum í heimi.
- Ferðast með Lauf á valda viðburði í Bandaríkjunum og Evrópu.
- Framúrskarandi samskiptahæfni.
- Reynsla af stjórnun samfélagsmiðla, klippingu, upptöku og útfærslu á efni.
- Færni í að vinna sjálfstætt og skapandi hugsun.
- Skipulagsfærni og sveigjanleiki er mikill kostur.
- Sérlega góð enskukunnátta.
- Reynsla af viðburðarhaldi er kostur, en ekki skilyrði.
English
Icelandic






