Iceland Parliament hótel
Iceland Parliament hótel
Iceland Parliament hótel

Veitingastjóri - Iceland Parliament/Reykjavík Konsúlat

Veitingastjóri ber heildarábyrgð á rekstri, afkomu og daglegri stjórnun veitingadeildar hótelsins, þar á meðal veitingastaðar, bars, viðburða- og veisluþjónustu og eldhúss. Markmið starfsins er að tryggja arðbæran og skilvirkan rekstur, framúrskarandi þjónustu og upplifun gesta, ásamt skilvirkri nýtingu rekstrarþátta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á rekstrarafkomu veitingadeildar, fjárhagsáætlun, tekjum og framlegð.
  • Veitir skýra og hvetjandi forystu og leiðir, þróar og þjálfar teymið.
  • Ber ábyrgð á mönnun, vaktaskipulagi og framleiðni í samræmi við eftirspurn og rekstrarþörf.
  • Fylgist með hráefnis- og launakostnaði, birgðum og sóun í samstarfi við yfirmatreiðslumann.
  • Vinnur markvisst að hagræðingu, aukinni sölu og bættri nýtingu rekstrarþátta.
  • Tryggir framúrskarandi þjónustu, gæði, matvælaöryggi og jákvæða upplifun gesta.
  • Vinnur náið með hótelstjóra og öðrum stjórnendum að rekstri, sölu og þróun hótelsins.
  • Fylgist með lykilmælikvörðum, greinir frávik og hrindir í framkvæmd úrbótum.
  • Sinna öðrum verkefnum sem starfið krefst.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði framreiðslu eða matreiðslu sem og menntun á sviði rekstrar og/eða sambærileg menntun/reynsla.
  • Reynsla af stjórnun veitingadeildar, þar með talið veislu- og viðburðaþjónustu.
  • Sterk rekstrar- og fjármálavitund og reynsla af áætlanagerð, kostnaðarstýringu og greiningu.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun fjölmenns teymis.
  • Skipulagshæfni og geta til að vinna í hröðu og krefjandi starfsumhverfi.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta.
Advertisement published22. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags