Ormsson ehf
Ormsson ehf
Ormsson ehf

Vefverslunar- og markaðsfulltrúi

Ormsson leitar að öflugum og skapandi einstaklingi í fjölbreytt starf við vefverslun, þjónustu og stafræna miðlun.

Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af góðum samskiptum, er skipulagður og lausnamiðaður og getur sinnt ólíkum verkefnum. Starfið hentar sérstaklega vel einstaklingi sem hefur áhuga á netverslun, samfélagsmiðlum, hönnun og textagerð.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
  • Er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður í vinnubrögðum
  • Hefur gott vald á íslensku og á auðvelt með að skrifa skýran og vandaðan texta
  • Kann vel á samfélagsmiðla og hefur áhuga á stafrænum markaðsmálum
  • Hefur gott auga fyrir hönnun og framsetningu
  • Er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Hefur áhuga á að læra, þróast og koma með nýjar hugmyndir

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og spennandi starf hjá rótgrónu íslensku fyrirtæki
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun vefverslunar og stafrænnar miðlunar
  • Skapandi og lifandi starfsumhverfi
  • Góðan starfsanda og samstarf við öflugan hóp
  • Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi

Ef þú ert jákvæður, skapandi og hefur ánægju af góðri þjónustu og fjölbreyttum verkefnum viljum við endilega heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með netpöntunum og eftirfylgni þeirra
  • Gerð einfalds markaðs- og kynningarefnis
  • Umsjón með samfélagsmiðlum og birtingu efnis
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
  • Samskipti við verslanir, lager og aðra samstarfsaðila vegna pantana
  • Uppsetning og uppfærsla á vörum, tilboðum og efni á vef
  • Textagerð fyrir vef, fréttabréf og samfélagsmiðla
  • Þátttaka í öðrum verkefnum tengdum vefverslun og markaðsmálum
Advertisement published22. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Lágmúli 6-8 6R, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Screen designPathCreated with Sketch.Website management
Professions
Job Tags