
Iðan fræðslusetur
Iðan er fræðslusetur í iðnaði og sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Námsframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun en markmið Iðunnar er að stuðla að framúrskarandi færni, framþróun og nýsköpun meðal starfsfólks í iðngreinum.
Markaðs- og sölustjóri
Langar þig að stýra markaðs- og sölustarfi leiðandi fræðsluseturs í iðnaði?
Iðan fræðslusetur leitar að metnaðarfullum og framsýnum markaðs- og sölustjóra. Hafir þú brennandi áhuga á að styðja við vöxt í fræðslustarfi og auka vitund um vörumerki og þjónustu með öflugu markaðs- og sölustarfi, gæti þetta verið starf fyrir þig.
Markaðs- og sölustjóri leiðir markaðs- og sölustarf Iðunnar, ber ábyrgð á vef Iðunnar, daglegum markaðsverkefnum og á í miklum samskiptum við starfsfólk Iðunnar þvert á félagið. Markaðs- og sölustjóri heyrir undir framkvæmdastjóra Iðunnar og situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta og innleiða markaðsstefnu, sem og markaðs- og söluáætlanir
- Stýra markaðsaðgerðum
- Greina markhópa þvert á iðngreinar og laga markaðsaðgerðir að þeim
- Greina og skrá árangur markaðsaðgerða
- Hafa umsjón með og sinna beinni sölu
- Fylgjast náið með þróun í markaðsfræðum og stafrænni tækni
- Gerð og eftirfylgni með framkvæmda- og rekstraráætlunum vegna markaðs- og sölustarfs
- Vinna náið með öðrum deildum félagsins
- Eiga í samskiptum og samvinnu við ytri samstarfsaðila í markaðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af markaðssetningu og sölumálum
- Reynsla af stafrænum markaðstækjum og greiningartólum
- Farsæl stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Þekking á fræðslu og símenntun er kostur
- Þekking á iðngreinum er kostur
Advertisement published24. June 2025
Application deadline3. July 2025
Language skills

Required

Required
Location
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Sales & Marketing Lead
Alda

Séní í samskiptum & stafrænum markaðsmálum
Nova

Vöruljósmyndari og markaðsfulltrúi.
GER verslanir

Vöruflokkastjóri snyrtivöru
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

💼 Imperial Akureyri óskar eftir metnaðarfullum sérfræðingi í netmarkaðssetningu og stafrænum r
Imperial Akureyri

Efnisskapari með markaðsáhuga? Aha er að leita af þér.
aha.is

Viðskiptastjóri MICE | Business manager MICE
Íslandshótel

Sölu- og markaðsfulltrúi Overcast
Overcast ehf.

Forstöðumaður sölu og þjónustu
Dineout ehf.

Stafrænn markaðssérfræðingur
Icelandia

Umsjónarmaður vefverslunar NTC
NTC ehf

Framkvæmdastjóri Frama
Frami