
Overcast ehf.
Overcast er fjölskylduvænt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar lausnir fyrir auglýsingabirtingar og áskriftarlausnir, auk þess að sinna fjölbreyttum vef- og forritunarverkefnum.
Fyrirtækið var stofnað 2013 og er alfarið í eigu starfsmanna. Markmið okkar er að búa til skemmtilegt og metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem hæfileikar hvers og eins fá að njóta sín. Við erum óformleg í samskiptum, höfum gaman af lífinu, en vinnum á sama tíma að öllum verkefnum með miklum metnaði.
Starfsmannafélag Overcast stendur fyrir óreglulegum viðburðum þar sem mökum er boðið með.

Sölu- og markaðsfulltrúi Overcast
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf sölu- og markaðsfulltrúa.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur skilning á sölustarfsemi og markaðssetningu og hefur áhuga á að vinna með samheldnum hópi starfsmanna að vaxtarmarkmiðum okkar.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með nýsölu og vinna að þróun og eftirfylgni sölustefnu
- Þróa og viðhalda núverandi viðskiptasamböndum
- Greining á markaðstækifærum og þróun samkeppnismarkaðar
- Vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að stefnumótun, áætlanagerð og vöruþróun
- Umsjón með miðlum og vefsíðum Overcast
- Umsjón og stjórnun viðburða sem og þátttaka á viðburðum, ráðstefnum og sýningum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og markaðsmálum
- Menntun á sviði markaðsfræði, viðskiptafræði eða á öðru tengdu sviði, er kostur
- Þekking á starfsemi auglýsinga- og/eða hugbúnaðargeirans er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Umbóta- og lausnamiðaður hugsunarháttur
- Sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og áreiðanleiki
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Góð þekking á samfélagsmiðlum og notkun þeirra í auglýsingatilgangi
Fríðindi í starfi
- 30 daga sumarfrí
- Sveigjanlegur vinnutími
- Framúrskarandi starfsumhverfi
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Drykkir og möns á „barnum“
- Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published12. June 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills

Required

Required
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
AdvertisingProactivePositivityMarket researchOnline marketingIndependenceSales
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Stafrænn markaðssérfræðingur
Icelandia

Starfsfólk í verslun - Kauptún - fullt starf
ILVA ehf

Starfsfólk í verslun í Kauptúni - helgar/hlutastarf
ILVA ehf

Þjónustufulltrúi
Ekran

Hlutastarf - söluráðgjafi
Húrra Reykjavík

Photography Gallery - Sales Consultant
Iurie I Fine Art

Sölufulltrúi / Business Development Manager
Teya Iceland

A4 Skeifan – Skemmtilegasta vinnan!
A4

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Reykjavík - Sölufulltrúi, 25 ára og eldri
Papco

Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR

Umsjónarmaður vefverslunar NTC
NTC ehf