aha.is
aha.is
aha.is

Efnisskapari með markaðsáhuga? Aha er að leita af þér.

Aha er að leita af einstakling sem:

  • Hefur brennandi áhuga á markaðssetningu og efnissköpun, hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða hefur reynslu að baki
  • Elskar að búa til efni, bæði fyrir framan og aftan myndavélina

  • Er drífandi, sjálfstæð(ur) og tekur frumkvæði

  • Hefur næmt auga fyrir smáatriðum, trendum og því sem fær fólk til að stoppa í feedinu
  • Er sterkur í textagerð og getur búið til bæði "captions" og póstlista sem virka
  • Er opinn og skemmtilegur karakter sem nennir að hlæja, pæla og framkvæma

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Búa til myndbönd, myndir og annað efni fyrir TikTok, Insta og Facebook

  • Skrifa og senda út póstlista (Mailchimp)

  • Klippa Reels og TikTok í CapCut, Canva eða sambærilegum tólum

  • Vera í beinum samskiptum við notendur og viðskiptavini

  • Taka þátt í hugmyndavinnu fyrir herferðir og markaðsefni

  • Taka myndir og myndbönd af mat, sendingum, starfsfólki o.fl.

  • Fylgjast með árangri efnis og læra hvað virkar

  • Við erum lítið og framkvæmdadrifið teymi, stundum þarf að stökkva í önnur verkefni eins og að svara í símann eða skella sér með sendingu. Það er hluti af stemningunni  og við hjálpumst alltaf að.

Einstaklingurinn myndi starfa á sölu og markaðsdeild Aha á skrifstofu okkar.
Byrjunardagur: Eftir samkomulagi, en því fyrr því betra.

Menntunar- og hæfniskröfur

Krafist:

  • Mikill áhugi á markaðssetningu og efnissköpun

  • Drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð hæfni í textagerð (caption, póstlistar o.fl.)

  • Vilji og geta til að vera bæði í mynd og á bakvið myndavél

Kostir:

  • Þekking á Canva, CapCut eða sambærilegum forritum

  • Reynsla af eigin TikTok / Reels efnissköpun

  • Einhver reynsla af myndatöku eða myndbandsvinnslu

  • Menntun eða námskeið tengd markaðssetningu, samfélagsmiðlum eða hönnun

Advertisement published18. June 2025
Application deadline2. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skeifan 9, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags