Beautybox
Beautybox
Beautybox

Kannt þú að skapa efni fyrir samfélagsmiðla? og elskar þú snyrtivörur?

Ertu skapandi, skipulögð/skipulagður og með gott auga fyrir því hvað grípur athygli á Instagram og TikTok og heimasíðum?

Við hjá Beautybox leitum að skapandi einstakling í hlutastarf sem sér um að búa til, skipuleggja og halda utan um efni á samfélagsmiðlum og í vefverslun. Vinnutími og prósenta getur verið sveigjanlegur, en við leitum af einstakling sem getur mætt daglega og deilt frá margvíslegum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og búa til efni fyrir samfélagsmiðla, sérstaklega Instagram og TikTok (myndir, story, reels, textar o.fl.)

  • Taka þátt í hugmyndavinnu og koma með tillögur að nýju efni og áherslum

  • Vinna með teymi við dagleg verkefni og stuðla að samræmdri og áhrifaríkri miðlun

  • Að auki er kostur að geta:
    • Skrifað fjölbreytt efni, t.d. blogg, vörutengdar greinar, fréttabréf og texta fyrir lendingarsíður

    • Hannað eða sett upp einfaldar lendingarsíður og kynningarsíður eftir þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð tilfinning fyrir því hvað grípur á samfélagsmiðlum og hvernig efni talar til viðskiptavina

  • Ófeimin(n) að vera sjálfur í mynd - og fá aðra með sér.
  • Kann að klippa saman grípandi efni.
  • Hæfni í að skrifa skýrt, stílhreint og í takt við andrúmsloft og stíl vörumerkis

  • Skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt og halda utan um eigin verkefni

  • Reynsla af því að vinna með forritum eins og Canva, Asana, Mailchimp eða sambærilegum kerfum er kostur

  • Almenn tæknifærni – t.d. að setja upp einfaldar lendingarsíður eða færa efni á milli miðla

  • Áhugi á snyrtivörum og innsýn í hvernig gott efni styður við sölu og þjónustu

  • Ekki gerð krafa um formlega menntun – en reynsla og/eða verkefnadæmi sem sýna getu eru mikils metin

Fríðindi í starfi
  • Starfsmenn fá reglulega snyrtivörugjafir því mikilvægt er að prófa vörur til þess að vita hvernig á að selja þær.
Advertisement published17. June 2025
Application deadline29. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Síðumúli 22, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags