

Áhugasöm snyrtivörustjarna óskast í fjölbreytt starf.
Ertu skipulögð/skipulagður, lausnamiðuð/lausnamiðaður og með áhuga á snyrtivörum, netverslun, verslun og góðri þjónustu?
Við leitum að fjölhæfum einstakling í fullt starf sem getur tekið þátt í daglegum verkefnum verslunar og netverslunar.
Þetta er fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir manneskju með mikinn drifkraft.
Við erum opin fyrir báðu:
-
Fullt starf
Vinnutími: 9–17 virka daga, möguleiki á föstum eða aukavöktum á laugardögum (11–16). -
Hlutastarf
Á virkum dögum, laugardögum, löngum opnunum og kvöldnámskeiðum. Starfshlutfall samkomuatriði.
-
Pökkun og afgreiðsla netpantana.
- Almenn verslunarstörf
-
Þjónusta í verslun, afgreiðsla og ráðgjöf.
-
Aðstoð við netverslun - svo sem að setja inn nýjar vörur osfv.
-
Er sjálfstætt starfandi, áreiðanleg(ur) og með metnað fyrir því að skila góðu verki.
-
Er sveigjanleg(ur), jákvæð(ur) og með góða samskiptahæfni.
-
Hefur brennandi áhuga á snyrtivörum og þjónustu við viðskiptavini.
-
Hefur skipulagshæfni og getur unnið með öðrum en líka tekið ábyrgð á eigin verkefnum.
-
Talar og skrifar góða íslensku og getur tjáð sig á ensku.
-
Hefur reynslu úr verslun eða þjónustu
-
Förðunarfræði og/eða snyrtifræði menntun er kostur en ekki skilyrði. Mikilvægast er að hafa áhuga, vilja og viðhorf sem passar í hópinn.
-
Snyrtivörugjafir reglulega – við viljum að starfsfólk þekki vörurnar af eigin reynslu.













