
Kraftur
Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Félagið er fyrir fólk á aldrinum 18 – 40 ára en þar sem félagið er einnig fyrir aðstandendur er fólk á öllum aldri í félaginu. Félagið hefur aðstöðu hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands án endurgjalds og er KÍ einn helsti styrktaraðili Krafts en félagið er einn af stuðningshópum Krabbameinsfélagsins.
Megin markmið Krafts eru að styðja við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur með því að halda úti jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, öflugri fræðslu, samveru á jafningjagrunni, veita hagnýtar upplýsingar og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra sem tengjast sjúkdómnum.
Starfsemi Krafts felst í því:
að veita andlegan og félagslegan stuðning við þá sem greinast og aðstandendur þess.
að gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi þeirra gagnvart opinberum aðilum.
að halda úti öflugu stuðningsneti þar sem áhersla er lögð á jafningjastuðning byggðan á persónlegri reynslu.
að veita félagsmönnum sálfræðiþjónustu.
að reka Neyðarsjóð Krafts.
að standa fyrir útgáfu á árlegu fréttabréfi og fræðsluefni í formi bæklinga og bóka.
að halda reglulegar uppákomur í nafni félagsins t.a.m. kaffihúsakvöld, sumargrill, aðventukvöld og fleira.

Markaðs- og kynningarstjóri (50-100%)
Kraftur leitar eftir öflugum og jákvæðum einstakling sem brennur fyrir umbótum og samfélagslegri velferð. Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í spennandi umhverfi hjá framsæknu almannaheillafélagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón á markaðs – og kynningarstarfi félagsins
- Þróar og innleiðir markaðsáætlanir á öllum miðlum félagsins
- Umsjón með vitundarvakningum félagsins
- Umsjón með vef- og samfélagsmiðlum félagsins
- Fréttir og almannatengsl
- Umsjón með textagerð fyrir markaðs- og útgáfuefni félagsins
- Ábyrgð á viðburðum er varðar markaðs- og kynningarstarf félagsins
- Umsjón með efnissköpun á samfélagsmiðum félagsins.
- Kemur að útgáfu og kynningarefni félagsins
- Almenn upplýsingagjöf og þjónusta við félagsmenn
- Önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfshlutfalls starfsmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og kunnátta á vinnslu efnis fyrir vef- og samfélagsmiðla
- Tölvufærni
- Færni í mannlegum samskiptum og framkomu.
- Reynsla eða þekking á málaflokknum, t.d. stuðningi við ungt fólk með krabbamein, aðstandendur eða skyldum heilbrigðis- og velferðarmálum er kostur.
- Þekking eða reynsla af starfi innan félagasamtaka er kostur.
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Advertisement published15. May 2025
Application deadline29. May 2025
Language skills

Required

Required
Location
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
AdvertisingEmail marketingFacebookQuick learnerPublic speakingProactiveGoogleGoogle AnalyticsHonestyCreativityInstagramPositivityTeachingSearch Engine Optimization (SEO)MailchimpHuman relationsMarket researchOnline marketingAmbitionPhone communicationEmail communicationConscientiousIndependenceDefinition of target groupsPlanningSnapchatPunctualFlexibilityContent writingTeam workMeticulousnessBrand managementCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Aðstoðarmaður lögmanna
LEX Lögmannsstofa

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Skrifstofustarf hjá Samgöngustofu
Samgöngustofa

Starfsmaður í bókhald og almenn skrifstofustörf
Fortis lögmannsstofa

Brennur þú fyrir upplýsingatækni, skýjalausnum og þjónustu?
Tölvuþjónustan

Starfsmann á skrifstofu félagsins
Sjálfsbjörg, félag hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu

Skrifstofustjóri - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Stafrænn Markaðssérfræðingur
PLAY

Markaðssérfræðingur
IKEA

Fjáröflunarstjóri
Kraftur

Fulltrúi á skrifstofu Sláturfélags Suðurlands, 50-100% starf
SS - Sláturfélag Suðurlands

Þjónustufulltrúi í þjónustu- og þróun
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu