

Stafrænn Markaðssérfræðingur
PLAY leitar að hæfileikaríkum og skemmtilegum stafrænum markaðssérfræðingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt markaðsteymi okkar. Hjá PLAY færðu tækifæri til að þróast faglega, vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í alþjóðlegu umhverfi og taka þátt í uppbyggingu vörumerkis sem er þekkt fyrir framsækni og fjölbreytileika.
Ef þú hefur ástríðu fyrir stafrænum miðlum, markaðstækni og gögnunum sem knýja árangur, þá viljum við heyra frá þér!
-
Umsjón og stöðug hagræðing stafrænna auglýsingaherferða
-
Stefnumótun og framkvæmd SEO og SEM herferða
-
Greining gagna og skýrslugerð til að styðja við ákvarðanatöku
-
Þróun hugmynda og ráðgjöf með markaðsteymi
-
Ábyrgð á kostnaðaráætlun og hámörkun árangurs á stafrænum miðlum
-
Uppsetning og viðhald sjálfvirkra skýrslna fyrir notkun innan fyrirtækisins
-
Markaðsrannsóknir og samkeppnisgreiningar á núverandi og nýjum mörkuðum PLAY
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Reynsla og þekking á auglýsingakerfum Meta og Google Ads
-
Færni í Google Analytics og öðrum gagnagreiningartólum
-
Geta til að túlka gögn og miðla niðurstöðum á skýran og hnitmiðaðan hátt
-
Menntun eða reynsla á sviði stafrænnar markaðssetningar
-
Vönduð og nákvæm vinnubrögð með augum fyrir smáatriðum
-
Jákvætt viðmót, sterk samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Hjá PLAY bjóðum við
-
Sveigjanlegt og skapandi vinnuumhverfi þar sem nýsköpun og frumkvæði fá að njóta sín
-
Fjölbreytt og spennandi verkefni með tengingu við markaði í þremur heimsálfum
-
Mikil tækifæri til starfsþróunar í framsæknu og ört vaxandi flugfélagi
-
Ótrúlega skemmtilegt samstarfsfólk og ótakmarkaðar flugferðir













