Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Sauðárkróki - Umsjónarmaður verslunar

Við leitum að umsjónarmanni fyrir Lyfju Sauðárkróki

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf umsjónarmanns í lyfjaverslun okkar á Sauðárkróki. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með verslun
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • þjónusta og almenn afgreiðslustörf

Við leitum af einstaklingi sem hefur:

  • Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
  • Skipulagshæfileika og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Góða almenna tölvukunnáttu
  • Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
  • góða íslensku- og enskukunnáttu

Vinnutími:

er frá 10:00 - 18:00 virka daga eða eftir samkomulagi.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:

  • jákvæðan starfsanda,
  • tækifæri til að þróast í starfi,
  • og getur nýtt hæfileika sína til fulls.

Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.

Nánari upplýsingar:

Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali Lyfju Sauðárkróki 📞 453 5700 ✉️ [email protected].

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published12. August 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur
Type of work
Professions
Job Tags