Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Lágmúla - þjónusta og ráðgjöf - vaktavinna!

Viltu taka vaktina í Lyfju Lágmúla?

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustarf í lyfjaverslun okkar í Lyfju Lágmúla. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.


Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Við leitum af einstaklingi sem hefur:

  • Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
  • Góða almenna tölvukunnáttu
  • góða íslensku- og enskukunnáttu

Vinnutími:

Um er að ræða fullt starf við sölu og afgreiðslu, en unnið er á dagvöktum, kvöldvöktum og um helgar samkvæmt vaktaplani.
Hvers vegna Lyfja?Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:

  • jákvæðan starfsanda,
  • tækifæri til að þróast í starfi,
  • að geta nýtt hæfileika sína til fulls.

Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.


Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og sé að minnsta kosti 18 ára.
Nánari upplýsingar:

Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali 📞533 2300 ✉️ [email protected]
Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Advertisement published7. August 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags