Deloitte Legal
Deloitte Legal
Deloitte Legal

Lögfræðingur á sviði virðisaukaskatts

Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 460.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.

Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman stefna að því að veita framúrskarandi þjónustu.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa við skattaráðgjöf á sviði virðisaukaskatts og tengdra mála, en jafnframt á öðrum sviðum skattamála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Úrvinnsla lagalegra álitaefna og ráðgjöf á sviði virðisaukaskatts.
  • Skráningar á virðisaukaskattsskrá.
  • Samskipti við stjórnvöld.
  • Skattalegar áreiðanleikakannanir.
  • Skjalagerð.
  • Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis. 
  • Ráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. 
  • Þriggja ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði virðisaukaskatts æskileg. 
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í ræðu og riti. 
Fríðindi í starfi
  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat. 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf.
  • Styrki til foreldra.
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks.  
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum. 
Advertisement published21. January 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Cand.jur.PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Precision
Work environment
Professions
Job Tags