
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni.

Ert þú lögfræðingurinn sem við leitum að?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða lögfræðing í deild lögfræðiráðgjafar og reglusetninga á sviði háttsemiseftirlits. Starfsmenn deildarinnar sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem tengjast eftirliti með starfsemi eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði og innleiðingu EES-gerða í íslenskan rétt. Leitað er að lögfræðingi sem hefur þekkingu á fjármálamarkaði, stjórnsýslu og reglusetningu og vill taka þátt í að þróa og útfæra regluverk og eftirlitsframkvæmd sem stuðlar að traustum og heilbrigðum fjármálamarkaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lögfræðiráðgjöf þvert á deildir og svið fjármálaeftirlits.
- Úrvinnsla lagalegra álita- og úrlausnarmála sem tengjast starfsemi eftirlitsskyldra aðila og regluverki á fjármálamarkaði.
- Stjórnsýslumeðferð og þátttaka í málum fjármálaeftirlits.
- Aðkoma að innleiðingu EES–gerða í íslenskan rétt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Grunn- og meistaranám eða embættispróf í lögfræði.
- Þekking á löggjöf á fjármálamarkaði.
- Þekking eða reynsla af meðferð og vinnslu stjórnsýslumála.
- Reynsla af störfum hjá eftirlitsskyldum aðilum sem tengjast hlítni við löggjöf á fjármálamarkaði er kostur.
- Þekking eða reynsla sem tengist innleiðingu EES-gerða í íslenskan rétt er kostur.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, greiningarhæfni, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Advertisement published22. January 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveAnalytical skillsHuman relationsIndependenceTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Lögfræðingur með brennandi áhuga á samkeppnismálum
Samkeppniseftirlitið

Corporate Finance Coordinator | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Spennandi störf við skatteftirlit
Skatturinn

Sérfræðistarf á þjónustusviði, Akureyri
Skatturinn

Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Vesturbyggð

Lögfræðingur á sviði virðisaukaskatts
Deloitte Legal

Sérfræðingur í samningastjórnun (e. Contract Manager)
Nýr Landspítali ohf.

Junior Professional Programme EFTA Secretariat 2026-2027
EFTA Secretariat

Starfsnám í Brussel hjá Uppbyggingarsjóði EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Lögfræðingur
Reykjavíkurborg

Lögfræðingur
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Junior Professionals Programme 2026/27
EFTA Surveillance Authority