Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Liðsfélagi í upplýsingatæknideild

Hefur þú áhuga á að starfa í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem góð samskipti, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun eru lykilþættir? Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða öflugan liðsfélaga til starfa í upplýsingatæknideild stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Rekstur á Microsoft kerfum þar sem staðbundnum lausnum og Microsoft 365 er blandað saman
  • Uppsetning og þjónusta vegna útstöðva, netþjóna, jaðartækja og hugbúnaðar
  • Rekstur ýmissa net-, öryggis- og eftirlitskerfa
  • Bakvaktarþjónusta gagnvart ofangreindum kerfum


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þekking og reynsla af kerfisstjórnun, netrekstri og notendaaðstoð
  • Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri á Microsoft netþjónum og Microsoft 365
  • Þekking og reynsla af rekstri sýndarumhverfa
  • Rík öryggisvitund og öguð vinnubrögð
  • Góðir samskiptahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku


Annað:

  • Föst viðvera upplýsingatæknideildar er bæði í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
  • Starfsstöðvar Landhelgisgæslunnar eru dreifðar og geta uppsetningar, bilanir og eftirlit kallað á ferðalög.


Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.

Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 230 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Um dagvinnustarf er að ræða með reglubundnum bakvöktum.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Advertisement published5. March 2025
Application deadline24. March 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags