
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og fer með yfirstjórn ráðuneytisins ásamt því að bera ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsfólks eru gerðar í umboði ráðherra.
Hjá ráðuneytinu starfa um 70 manns og eru flestir með lögfræðimenntun. Undir starfsemi ráðuneytisins heyra um 47 stofnanir sem ná til þriggja málefnasviða samkvæmt lögum um opinber fjármál og snerta fjölmörg svið þjóðfélagsins. Meðal þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið eru lögregluembætti, sýslumenn, Fangelsismálastofnun, Persónuvernd og fleiri.
Skipurit ráðuneytisins skiptist niður á sjö skrifstofur sem eru skrifstofa yfirstjórnar, skrifstofa alþjóðmála, skrifstofa réttinda einstaklinga, skrifstofa jafnréttismála, skrifstofa löggjafarmála, skrifstofa löggæslumála og skrifstofu fjármála sem starfar þvert á allar einingar.

Leitar þú að starfi þar sem enginn dagur er eins?
Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi upplýsingafulltrúa á skrifstofu yfirstjórnar. Skrifstofan ber ábyrgð á stefnumótun, stjórnun og samhæfingu á starfsemi ráðuneytisins í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð
Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á upplýsingagjöf ráðuneytisins til fjölmiðla og er stjórnendum ráðuneytisins innan handar í samskiptum við þá. Starfið felur í sér gerð fréttatilkynnninga, umsjón með kynningarefni, fjölmiðlafundum og stærri viðburðum og ritstjórn á vef ráðuneytisins. Markmiðið er að tryggja rétta og skýra upplýsingagjöf í samstarfi við ráðherra, aðstoðarmenn og starfsfólk ráðuneytisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á málefnasviðum ráðuneytisins.
- Þekking og reynsla af starfi í fjölmiðlum og þeirra starfsemi.
- Þekking og reynsla af vefumsjónarkerfum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Hæfni til að skrifa skýran og hnitmiðaðan texta um flókin álitaefni.
- Geta til að vinna á faglegan og skilvirkan hátt undir álagi.
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Advertisement published15. June 2026
Application deadline25. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Nýsköpunarstjóri - Stafræn heilsa
Heilbrigðisráðuneytið

Sveitarstjóri
Skagaströnd

Bæjarstjóri
Fjallabyggð

Seltjarnarnesbær - launafulltrúi
Seltjarnarnesbær

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps
Súðavíkurhreppur

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Seltjarnarnesbær - Deildarstjóri reikningshalds
Seltjarnarnesbær

Velferðarsvið - Ráðgjafi
Reykjanesbær

Bæjarstjóri
Grindavíkurbær

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Háskóli Íslands

Húnaþing vestra auglýsir starf þroskaþjálfa
Húnaþing vestra