Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Leikskólakennari - leikskólaliði

Erum við að leita að þér? Maríuborg er fimm deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt, lífsleikni og leikgleði. Við leitum að starfsmanni í leikskólann Maríuborg, sem er staðsettur í nátttúruparadís Grafarholts. Einkunnarorðin eru leikur, samskipti og námsgleði þar sem við leitumst eftir að skapa hlýlegt námsumhverfi barna og fullorðinna. Við styðjumst við Menntastefnu Reykjavíkurborgar sem leggur áherslu kraftmikið leikskólastarf þar sem börnin fá menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt, gefandi og getur þú haft áhrif á þau ævintýri sem skapast þar á hverjum degi!

Bæði hlutastarf og fullt starf í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara. Tekur virkan þátt í skipulagningu faglegs starfs, foreldrasamstarfi og tekur virkan þátt í leik og starfi með börnunum á deildinni bæði inni og úti, undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Stundvísi og faglegur metnaður.
  • Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
Advertisement published7. April 2025
Application deadline21. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Maríubaugur 3, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Flexibility
Work environment
Professions
Job Tags