Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar

Leikskólakennarar

Leikskólinn Goðheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 7. ágúst 2025. Einnig eru nokkrar lausar stöður nú þegar.

Leitað er eftir leikskólakennurum sem hafa áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu á leik og leikumhverfi barna. Í Goðheimum er lögð áhersla á vellíðan nemenda, að þeir séu meðvitaðir um eigin tilfinningar og styrkleika og geti sýnt sjálfum sér og öðrum vinsemd og virðingu með aðferðafræði Hugarfrelsis að leiðarljósi. Goðheimar taka þátt í Grænfánaverkefni Landverndar og er skóli á grænni grein. Leikskólinn er einnig þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi leikskóli sem er á vegum Embættis landlæknis. og vinnur eftir hugmyndafræði Hugarfrelsis. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður og umhverfi þar sem fólki getur liðið vel og fengið tækifæri til að blómstra í leik og starfi.

Leiðarljós leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Sjálfbærni

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Í stefnu skólans er unnið með leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Leikurinn á vísdóm veit.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. 
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem deildarstjóri felur honum. 
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. 
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.  
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
Advertisement published7. April 2025
Application deadline21. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Engjaland 21, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags