Leikskólinn Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði

Leikskólakennari - Fullt starf / tímavinna

Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra háskólamenntun og/eða reynslu af starfi með börnum í leikskóla óskast til starfa við Leikskólann Vinagerði. Um er að ræða fullt starf en tímavinna er einnig í boði. Vilt þú koma og vinna með frábærum börnum og frábærum samstarfsfélögum? Þá er Vinagerði staður fyrir þig!

Leikskólinn Vinagerði er þriggja deilda leikskóli með 60 börnum og starfar í anda Reggio Emilia. Sú hugmyndafræði byggir á virkri þátttöku barna og er lögð mikil áhersla á rétt barnsins til að vera einstakt.

Leiðarljós leikskólans eru gleði, hvatning og nærgætni.

Við erum staðsett miðsvæðis í borginni í Safamýri 5, og liggur vel við samgönguleiðum. Í nánasta umhverfi eru fallegar gönguleiðir og staðir sem gaman er að njóta.

Áhersla er lögð á skapandi starf, frjálsan leik og að umhverfi barnanna veki forvitni og vellíðan. Við nýtum skapandi og náttúrulegan efnivið en auk þess er boðið upp á gott úrval af vönduðu leikefni bæði innan dyra og utan. Útileiksvæði er gott og vel skipulagt.

Við erum Réttindaskóli Barnasáttmálans og byggjum upp með börnunum lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa þeim að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi.

Í Vinagerði starfar metnaðarfullur hópur af fólki með fjölbreytta menntun.

Leikskólinn starfar undir Norðurmiðstöð sem er okkar þjónustumiðstöð og nýtur stuðnings fagfólks þeirra og samstarfs.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Við hvetjum alla áhugasama til að koma í heimsókn og kíkja á heimasíðuna og Instagram síðu Vinagerðis

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna 
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs 
  • Foreldrasamstarf undir stjórn deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur háskólamenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Góð íslenskukunnátta C1
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar; 36 stunda vinnuvika
  • Frír hádegismatur
  • Sundkort sem veitir ókeypis aðgang að 7 sundlaugum
  • Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
Advertisement published7. November 2025
Application deadline21. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Safamýri 5, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags