Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar

Leikskólakennarar hjá leikskólanum Strandheimum

Leikskólinn Strandheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 8. ágúst 2024.

Leitað er að leikskólakennurum sem hafa áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu á leik, samvinnu, traust og gleði. Í leikskólanum Strandheimum er virkt lærdómssamfélag. Leikskólinn er heilsueflandi leikskóli.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Áherslur Strandheima eru á leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Leiðarljós leikskólans eru Vellíðan - Sköpun - Virðing.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgjast vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinna faglegum verkefnum sem deildarstjóri felur honum.
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Að sitja starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varða starfsemi leikskólans.
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Advertisement published18. January 2025
Application deadline27. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Túngata 39, 820 Eyrarbakki
Blómsturvellir 1, 825 Stokkseyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags